Leita í fréttum mbl.is

Ræða fortíðar

Ræða Steingríms J. Sigfússonar á landsþingi Vg er ræða um fortíðina. Hann gagnrýnir Halldór Ásgrímsson, en samt sem áður hefur Vg endurreist Halldór til starfa fyrir land og þjóð á alþjóðavettvangi.

Vissulega gagnrýndi Vg einkavinavæðinguna og skuldasöfnun þjóðarbúsins sem orakaði hrunið. Ekki var hann einn um þá gagnrýni eins og Steingrímur lætur í veðri vaka en það voru fleiri ábyrgir aðilar sem vöruðu við s.s. Frjálslyndi flokkurinn, fjöldi hagfræðinga og Útvarp Saga.

Óneitanlega skýtur það skökku við að Steingrímur, sem varaði við vondu fjármálkerfi, unir sér ekki hvíldar við að endurreisa nánast óbreyttu kerfi og beitir þar að auki óvönduðum meðulum, sem hann áður harðlega fordæmdi. Steingrímur hefur beitt blekkingum s.s. í Icesavemálinu, leynd og þar að auki verið stórtækastur allra ráðamanna í sögu landsins við að einkavæða.

Mikið áhyggjuefni er fyrir Vg og jú þjóðina á meðan flokkurinn heldur enn um stjórntaumana að eina stefnan sé að endurreisa hið fallna kerfi.


mbl.is Munum áfram nota krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég var einmitt að hugsa þetta, Frjálslyndi flokkurinn varaði reyndar meira og hastarlegar fyrir hættunni en Steingrímur, en það er gott að slá sig til riddara svona eftir á.  Gott hjá Lilju og Atla að segja sig frá þessu flokksræksni. Ætli það verði nú ekki fleiri sem fara.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.10.2011 kl. 01:40

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Fyrir kosningarnar 2007 hélt Steingrímur því reyndar fram á fundi  á Akureyri að sjávarútvegurinn skipti litlu máli og væri nánast orðin hliðargrein. Það sem skipti máli  þá að mati Steingríms var útflutningur þekkingarsamfélagsins á hugviti og gott ef hann minntist ekki síaukið mikilvægi fjármálageirans.

Hann hélt þessa tölu þegar hann var spurður út í stefnu Vg í fiskveiðistjórnarmálum. Núna þykist hann hafa breytt einhverju þegar hann hefur litlu sem engu breytt nema þá helst að setja makrílinn inn í kvóta. 

Sigurjón Þórðarson, 29.10.2011 kl. 09:59

3 identicon

Arfavitlaus og spillt íhaldsöfl, en þar á ég við Sjallana, hækjuna + allar náhirðir og kúlulána-meðreiðarklíkur, settu landið á hausinn með froðuhagkerfi, sem hófst með flokkavæðingu bankanna og of stórum virkjunum. Endurreisnin hefur nefnilega tekist lýgilega vel, þrátt fyrir að bennuvargarnir hafi ekki aðeins þvælst fyrir slökkvuliðinu, heldur hellt olíu í eldinn og það með aðstoð forsetaræfilsins. Svo halda fávísir bloggarar að viðreisnin taka barasta í mesta lagi eitt kjörtímabil. Það mun taka 10-20 ár að hreinsa til eftir afglapana Dabba + Dóra.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 29.10.2011 kl. 10:26

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Haukur ertu ánægður með einkavæðingu bankanna þar sem er launung á því hverjir "nýju" eigendurnir eru og sömuleiðis milljarða tugina sem slengt var í Saga Capital, VBS og Sjóvá og svo má lengi telja.

Haukur ertu sáttur við afskriftir á höfuðpaura hrunsins s.s.  Ólaf Ólafsson í Samskip, sem nú halda áfram "viðskiptum" eins og ekkert hafi í skorist á meðan almenningur og sveitarfélög eru kramin?

Haukur ertu sáttur við hvernig kerfið hefur tekið á þeim fjársvikum og innherjaviðskiptum sem stunduð voru í bankakerfinu?

Ertu sáttur við kyrrstöðuna í sjávarútvegsmálum og enn séu brotin mannréttindi á sjómönnum?  

Sigurjón Þórðarson, 29.10.2011 kl. 11:11

5 identicon

Sæll Sigurjón. Nei, ég er mjög ósáttur með allt sem þú nefnir. Samt er ég þeirrar skoðunar, að "byrjun" endurreisnarinnar hafi tekist vel. Flækan var gífurleg (þetta veistu) og réttar lausnir ekki augljósar eða borðliggjandi. Nú þarf að takast á við margt af því sem þú telur upp, og það með hörku og skynsemi. Annars, af hverju gengur þú ekki til liðs við Guðmund Steingrímsson? 4-Flokkurinn er dauður, við viljum nýjan flokk eða flokka og nýjan mannskap. Við viljum gott fólk, við viljum "meritocracy". 

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 29.10.2011 kl. 11:43

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Kallarðu Guðmund Steingríms val Haukur?  Fyrir hvað stendur hann, nú fyrir utan ESB drauminn og svo eitthvað annað???? Hefurðu séð hann marka einhverja stefnu?  Hefurðu heyrt hann ræða um konkret um hvað nýji flokkurinn eigi að snúast um?

Nei Guðmundur er ekki val, nema fyrir Samfylkingarfólk sem er orðið þreytt á Jóhönnu.  Svo sem ágætt að því leyti, því Samfylkingin hefur hvort sem er aldrei haft neina stefnu nema halda sér við kjötkatlana.

Þetta er örugglega ágætis drengur, en við erum búin að brenna okkur oft á að kjósa út á andlit ekki satt?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.10.2011 kl. 12:00

7 identicon

Ein styrkasti þáttur mögulegrar endurreisnar er krónan og það hversu lág hún er.  Vandinn er þó að ekki er búið að gera nauðsynlegar hliðarráðstafnanir t.g. gangvart almennum skuldurum og að skattleggja útflutningsgreinar sérstaklega vegna gjaldeyrishagnaðar.    Steingrímur "talar" um gagnsemi krónunnar og ókosti ESB en vinnur ötulega að inngöngu í ESB sem ku jú vera m.a. til að geta kastað krónunni!   

Lygar og þversagnir í bland við svikin loforð, það er Steingrímur J.

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 29.10.2011 kl. 17:26

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já nákvæmlega Bjarni, hvað segir það um 73% flokksmanna sem kaus hann til áframhaldandi setu sem formaður

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.10.2011 kl. 17:30

9 identicon

Það verður örugglega safaríkt viðfangsefni sagn- og stjórnmálafræðinga framtíðarinnar hvað þessir svo kölluðu vinstri flokkar hafa gerst dyggir stuðningsmenn fjármagns á móti hagsmunumm almennings.  Trúlega er hluti svarsins sá að hér gera menn ekkert nema það rými við það sem gerist erlendis.

Elítan er líka sterk og strengjabrúðurnar víða, ekki dettur mér í hug að halda að Sjálfsæðisfl. eða Frams. hefðu gert neitt öðruvísi, ja, nema að þeir hafi lært eitthvað af hruninu ;-)   en þetta er bara ekki spurning um þekkingu, hún víkur fyrir valdinu eins og einhver benti á. 

Hér gerist víst fátt nema fyrirmyndir komi að utan.

Samt eigum við fólk sem gæti ............

Hugsum okkur t.d. að forsetinn færi að hugsa jafn skemmtilega út fyrir boxið og hans ágæta frú!    Nýtti sér þau völd sem stjórnarskráin veitir honum og leysi upp ríkisstjórn og boði til þingkosninga í hvelli ásamt kosningu um að hætta við umsókn um aðild að ESB.  Skipaði utanþingsstjórn með almennilegu fólki (nei ekki Þorvald Gylfa)  sem starfaði í umboði hins nýja þings.

Maður má nú láta sig dreyma!

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 29.10.2011 kl. 18:25

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég vil einmitt endilega láta mig dreyma á þá lund.  Það væri frábært.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.10.2011 kl. 18:41

11 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

ekki dettur mér í hug að halda að Sjálfsæðisfl. eða Frams. hefðu gert neitt öðruvísi, ja, nema að þeir hafi lært eitthvað af hruninu

Já, þeir hefðu kannski lært, hvernig þeir myndu næst fara að því að ræna okkur, án þess að missa völdin í kjölfarið. Svo þeir geti haldið því áfram eins lengi og þurfa þykir (að þeirra mati).

Guðmundur Ásgeirsson, 29.10.2011 kl. 19:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband