Leita í fréttum mbl.is

Er Alþingi orðið að fæðingardeild þorska?

Margt sérkennilegt kemur frá Alþingi þessa daganna.  Þingmenn virðast sjá hverjir í öðrum hryssur, ketti og beljur.  Greinilegt er að Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra og búfræðingur hefur ruglast í ríminu á öllu þessu skepnu tali.

Núna telur hann að það megi auka kvótann við það eitt að samþykkja frumvarp sem fáir hafa séð.  Engu líkara er á málflutningi Jóns Bjarnasonar að við samþykkt frumvarpsins þá fjölgi þorskinum í hafinu í kringum Ísland.  Leyniplaggið fer að verða æ meira spennandi en mögulega felur það í sér einhver ljósmóðurstörf þingmanna.

Plott Jóns Bjarna til þess drífa leyniplaggið um stjórn fiskveiða í gegnum þingið án umræðu í samfélaginu er í raun skemmtilega fábjánaleg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Sæll.

Þetta er sami hatturinn og var notaður þegar Icesave heilaþvotturinn var í gangi. Það lepja allir dauðann úr skel á Íslandi nema að frumvarpið verði samþykkt.

Ég er farinn að hallast að því að þegar stjórnarliðar kinka kolli, eða hrista hausinn, skröllti í kollinum á þeim, líkt og í barnahringlu.

Sindri Karl Sigurðsson, 12.5.2011 kl. 12:21

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Af hverju eykur Jón ekki veiðihlutfallið í 25%?

Er hann kannski sammála Einari Kr. um að aukning aflaheimilda rýri veðgildi kvótans og sé þjóðhagsleg ógnun?

Það er í höndum Jóns Bjarnasonar að glæða sjávarplássin lífi í sumar og létta af fólkinu þar þrælsoki stjórnvalda og LÍÚaranna.

Reynist hann maður til þess?

Árni Gunnarsson, 12.5.2011 kl. 13:02

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það þarf að endurskoða þetta ónýta kerfi frá grunni og sömuleiðis veiðiráðgjöfina og taka upp sóknarkerfi.

Sigurjón Þórðarson, 12.5.2011 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband