Leita í fréttum mbl.is

Árásir Steingrímsarmsins geta fellt ríkisstjórnina

Líkur eru til þess að heiftúðugar árásir Evrópuarms Vg sem njóta greinilega velþókknunar formannsins, á tvímenninganna í Vg sem sögðu skilið við þingflokkinn, geti fellt ríkisstjórnina.  

Bóka má að Atli og andstæðingar Evrópusambandsins innan Vg, munu verja sig og deilurnar magnast.  Ekki er ólíklegt að þá muni innan skammms þeir sem staðið hafa nærri þeim Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasonar innan þingflokksins, blandast í þær illdeilur allar. 

Erfitt er að fá nokkurn botn í þessar aðfarir, nema þá helst að Steingrímur J. sé orðinn uppgefinn á því að sitja í ríkissjórninni enda farinn að átta sig á því að hann er ekki ráða við verkefnið og sé að leita leiða út.


mbl.is Rétt að Atli víki af þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nákvæmlega það sem ég hugsaði.  Þessi hefniviðbrögð eru ólíðandi, og á sama tíma fengu þeir til liðs við sig Þráinn Bertelsson möglunarlaust.  Hvar er þá hans umboð?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.3.2011 kl. 09:19

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Heitir þetta ekki tvöfalt siðgæði? Evropuarms VG. Mb.kv.

Helga Kristjánsdóttir, 23.3.2011 kl. 10:21

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Aðeins hægri kanturinn býður upp á tvöfalt siðgæði eða svo segir venstri armurinn. Steingrímur hélt hann gæti leikið tveimur skjöldum í ríkisstjórn en kynntist þá þrefalda siðgæði Samfylkingarinnar.

Í þeirri súpu situr hann nú og þeir sem enn fylgja honum að málum.

Ragnhildur Kolka, 23.3.2011 kl. 17:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband