Leita í fréttum mbl.is

Steingrímur undirbýr klofning

Ekki vottar fyrir neinum sáttartóni hjá Steingrími J í fundarherferð hans um landið. í kvöld mætti fjármálaráðherra í öllu sínu veldi á fund í Skagafjörðinn. Ef Steingrímur hefði ætlað  að ná flokknum saman þá hefði  verið nærtækast að hafa með sér unga vinsæla dalamannin, Ásmund Einar Daðason sem er vinsæll m.a. vegna andstöðu sinnar við ESB og blóðugan niðurskurð á Heilbrigðisstofuninni á Sauðárkróki.  Í stað þess hafði Steingrímur með sér Árna Þór stofnfjárbraskara og Eprópusinna og sömuleiðis ætlaði hann að hafa með sér einn allra óvinsælasta þingmann VG í Skagafirði Björn Val Gíslason sem barðist af alefli fyrir að rústa algjörlega heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni. Spurst hefur að fundurinn hafi verið mjög fámennur enda takmarkaður áhugi sveitunga minna á að hitta kvalara sína.

Vinnubrögð Steingríms sýna að hann undirbýr fyrirsjáanlegan klofning í flokknum og er að reyna að þjappa fólki í kringum sína þröngu klíku.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað mættu margir á fundinn í Grundarfirði á fimmtudagskvöldið með hinum geysivinsælu frambjóðendum Guðjóni Arnari og Sigurjóni sem báðir eru firrverandi þingmenn og fallistar?

Snæfellingur (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 15:23

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Svo má böl bæta að benda á eitthvað annað, var Frjálslyndi flokkurinn til umræðu hér.  Þetta er dæmigerðar umræður á Íslandi, djöflast yfir einhverju öðru þegar reynt er að benda á það sem miður fer.  Fólk hefði betur hlustað á Frjálslynda flokkinn frá upphafi, því allt sem þeir sögðu hefur nú komið á daginn.  Ef við hefðum fylgt þeirra sýn á málin værum við ekki í þeim sporum sem við erum í í dag.  En fjórflokkurinn hefur aldrei þolað ný framboð, því þau eru ógn við klíkurnar og auðvaldið sem stjórnar okkur hér.  Svei ykkur bara ykkar tími er að líða og hann kemur vonandi aldrei aftur, þegar fólk áttar sig á því hve það hefur verið miklir sauðir að trúa fólki eins og Snæfelling hér,sem sennilega er útgerðarmaður eða sjalli eða auðvitað bæði. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.1.2011 kl. 15:45

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Snæfellingur, það hefði svo sannarlega mátt vera betri mæting á fundinn í Grundarfirði en ég held að það hafi ekki verið nema 9 manns. Það er nú reyndar svo að það hefur verið haft samband við í kjölfar fundarins á Grundarfirði frá einum sem missti af fundinum og óskaði eftir að fá sendar glærurnar sem við Guðjón sýndum en þær vöktu athygli.

Sigurjón Þórðarson, 15.1.2011 kl. 16:10

4 identicon

Því miður komu inn í frjálslyndaflokkinn aðilar sem nánast gengu að honum dauðum. Bæði með innbyrðis deilum sem að miklu leyti fóru fram í blöðum og öðrum fjölmiðlum, sem og vafasömum hugmyndum og skoðunum.

Þeir aðilar (meðal annars fyrrv þingmenn og flokkaflakkarar) eru farnir úr flokknum og skildu eftir sig rjúkandi rústir.

Gott fólk hefur tekið við og er að reyna að endurbyggja þennan annars ágæta flokk sem Frjálslyndiflokkurinn svo sannarlega er.

Óska þér góðs gengis í því Sigurjón, Helga of fleirri.

Einar (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 16:19

5 identicon

Svo þykist þið hafa efni á að rífa kjaft engin hlustar á ykkur.

Snæfellingur (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 16:21

6 identicon

Snæfellingur:

Hvað þykist þú vita um það hver hlustar á hvern og hvenær ?

Mér þykir þú heldur betur vera með puttann á púlsi þjóðarinnar, að geta fullyrt um hvaða fólk hlustar ekki á frjálslynda flokkinn.

Um hvað ertu að tala maður ?????

Er ekki annars þessi færsla um allt aðra hluti og verið í henni að fjalla um VG og meðal annars fund þeirra úti á landi þar sem 9 manns mættu?

Hvað tengist sá hlutur Frjálslyndaflokknum?

Undan hvaða steini komst þú? viltu ekki skríða undir hann aftur og vera til friðs.

Einar (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 16:29

7 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Einar kannski hefur þessum glaðlynda Snæfellingi fundist heldur taktlaust af formanni vorum að hnýta í VG þegar hann var sjálfur búinn að fara erindisleysu í aðrar sveitir. Það er alveg sjónarmið. Annars er töluverður munur á hvort verið er að tala um fund hjá flokki sem varla er mælanlegur í könnunum eða flokk sem heldur um stjórnartaumana á þjóðarskútunni. Ég er nú sammála því að Steingrímur J var heldur seinheppinn með meðreiðarsveina. Stundum vilja menn bara hafa með sér já-menn og þetta er líklega ein birtingarmyndin af því. Þær eru ýmiskonar, kveðja og megi nýtt ár færa Frjálslynda flokknum ný tækifæri og nýja sigra. kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 15.1.2011 kl. 17:59

8 identicon

Mikið til í þessu Kolbrún en hér er verið að fjalla um VG og þessa ferð og einhvernvegin finnst manni það eðlilegt að Sigurjón geti haft sínar einkaskoðanir á því máli. Þetta er hans prívat bloggsíða sem hann hafði löngu áður en hann varð formaður FF, annað ef þessi færsla væri á heimasíðu Frjálslyndaflokksins.

þannig lít ég á þetta allavega.

Einar (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 19:42

9 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Einar. Nú er ég ekki alveg að skilja hvað það kemur málinu við hvort þetta er hans einkasíða eða ekki. Það er nú ekki eins og menn séu að fara daglega á síða FF. Menn verða líklega að taka því þegar kemur mótsvar við pólitískum pistlum. Það er nú ekki eins og Snæfellingur hafi verið með persónumeiðandi ummæli.

Ég ætti kannski að draga þessar frómu óskir mínar til flokksins til baka og setja þær á heimsíðuna, eða hvað finnst þér ?  Kveðja Kolla  

Kolbrún Stefánsdóttir, 15.1.2011 kl. 19:57

10 identicon

Mér datt bara í hug að spurja um fundinn á Grundarfirði þegar ég las þennan pistil. Ég var ekki búinn að frétta neitt. Hann var auglýstur með frétt á skessuhornsvefnum og maður bjóst við að fleiri myndu mæta í þessu mikla sjávarplássi ef boðskapur firrverandi þingmanna, núverandi og fyrrverandi formanns Frjálslynda sem er líka aðstoðarmaður Jóns Bjarna væri svona mikilvægur. Virkjum Grundafjörð var yfirskriftin. Bara níu manns er fáránlega lélegt. kannski "enda takmarkaður áhugi sveitunga minna á að hitta kvalara sína".

Snæfellingur (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 20:19

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nafnleysingjar einir mæta hér til að þræta við þig, Sigurjón.

Sennilega gungur í höfuðstöðvum VG-svikaforystunnar.

Jón Valur Jensson, 15.1.2011 kl. 21:06

12 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sælt verið fólkið finnst ykkur eitthvað undralegt við það að koma saman og taka á móti þingheim þann 17.01 ef svo er þá veit ég ekki hvar hinir sömu hafa verið undanfarin ár?

Sigurður Haraldsson, 15.1.2011 kl. 21:34

13 Smámynd: Haraldur Baldursson

Ég tek undir með þér Sigurjón að Steingrímur hefði sýnt mikinn höfðingjabrag með því að þiggja nærveru Ásmundar Einars. En þá líka fyrst og fremst sökum þess að Ásmundur Einar er svo sannarlega höfðinglegur fulltrúi, ekki bara yngri kynslóða heldur og þeirra sem gegn ESB aðild Íslands standa. VG er enn ein sönnun þess að flokki fer ekki vel að troða sér heilum og óskiptum undir hælnum á einum manni. Já-Sveina hjörðin eru skoðanalausir bræður ómegðar og aumingjaskaps sem hjarðeðli þeirra og stóla-losti best ber vitni.

Ásmundur Einar er  glöggur maður og hefur ríkari tilfinningu fyrir þörfum þjóðar sinnar í litla fingrinum, heldur en Steingrímur hefur í öllum skrokknum.

Ég mæli með því við kokhraustan Snæfelling að sýna dug sinn og sannfæringu, með því að koma fram undir nafn. Ég trúi því illa að svona raddmikill ritari stórra orða vilji skríða um í skugganum eins og vesæll kotkarl...og þó maður er svo sem farinn að trúa ýmsu...full mörgu, því miður.

Haraldur Baldursson, 16.1.2011 kl. 18:52

14 Smámynd: Haraldur Baldursson

Já og svo rétt til viðbótar mæli ég eindregið með því að enskumælandi blogglesarar leggi það á sig að lesa óskipta orðræðu Paul Krugman um ESB og Evruna :
http://www.nytimes.com/2011/01/16/magazine/16Europe-t.html?_r=4&ref=homepage&src=me&pagewanted=all

 Það má líka glögglega lesa í greininni harða gangrýni á varðveislu fjármuna á kostnað launþega...sem sagt gagnrýni á skemmtileg fyrirbæri eins og verðtrygginguna.

Haraldur Baldursson, 16.1.2011 kl. 18:55

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sigurjón hefurðu einhversstaðar hjá þér greinina, þar sem fulltrúar ESB tala um að 300.000 manns hafi ekkert að gera með allan þennan kvóta og landhelgi sem við höfum.  Mig vantar það sárlega í grein sem ég ætla að skrifa.  Get ekki fundið hana aftur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.1.2011 kl. 19:02

16 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það væri mjög forvitnilegt að sjá þá grein, Ásthildur og Sigurjón.

Jón Valur Jensson, 16.1.2011 kl. 19:15

17 identicon

Heill og sæll Sigurjón - og þið önnur, gestir hans !

Haraldur Baldursson !

Í hvaða Baðmullar veröld; hefir þú alið manninn, ágæti drengur ?

Ásmundur Einar Daðason; er af sama grútar meiði - og þau Lilja Mósesdóttir / Atli Gíslason og hinn óborganlegi frændi minn, af Stefánunga kyni (úr Leirársveit, vestur), lyga- og klækja Mörðurinn Ögmundur Jónasson, hafir þú ekki uppfræddur verið, fram til þessa, ágæti drengur.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.1.2011 kl. 22:13

18 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Óskar Helgi, er ekki um að gera að reyna að berja kjark í þau Ásmund og Lilju til góðra verka.

Kolbrún, ég lít nú alls ekki svo á að fundurinn í Grundarfirði hafi verið erindisleysa en það er nú þannig í þessum bransa að góður fundur getur skilað miklu þó svo fundarmenn séu ekki ýkja margir.

Ég stefni á að halda fund utar á Snæfellsnesinu á næstu vikum og vonast svo sannarlega til þess að dyggur áhugamaður um Frjálslynda flokkinn sem kallar sig Snæfelling sjá sér fært að mæta og skiptast á skoðunum við formann Frjálslynda flokksins sem er reyndar kominn af "vondu fólki". 

 Ásthildur sendu mér endilega greinina en við Guðjón stefnum á fund á Ísafirði þann 12. feb nk.

Sigurjón Þórðarson, 16.1.2011 kl. 23:07

19 Smámynd: Haraldur Baldursson

Ásthildur, ekki veit ég hvort krækja þessi :
http://www.delisl.ec.europa.eu/seminar/Reformed_EU_CFP.htm
vísi á rétta grein...en fagurgalinner mikill...

Haraldur Baldursson, 17.1.2011 kl. 22:32

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þakka þér fyrir Haraldur jú ég hugsa að þetta sé enmitt bréfið sem fréttin var unnin úr: 

The Icelandic example counts, as Iceland is a major power in fisheries. However, as a country of 300,000 inhabitants, which controls large swaths of arguably the best fishing waters in the world, Iceland is also in an enviable position. I think one can say in all fairness that the task for the EU is of a different order than that of Iceland. Fisheries management on the level of the EU has to cope with framework conditions which seem rather more complex. The EU is very densely populated - half a billion people - with relatively limited fishing waters under much strain. EU fishing policy in 2007 means addressing the needs and specificities of 22 coastal states, bordering four seas and one ocean, from small-scale traditional fishermen to an industrial high seas fleet which is traditionally active around the globe, from fishing on distinct migratory species in the North to the intrinsically mixed fishery on pelagics in the Mediterranean. Giving this policy a new orientation cannot be done overnight. It requires a multi-annual effort and establishing ownership of specific tailor-made solutions for individual regions and fisheries.

 

Sennilega er fréttinn unninn upp úr þessu bréfi.  Þó það sé ekki sagt beint þá sést að hugsunin er til staðar.  Mér hefur nefnilega verið sagt að yfirstjórn ESB sé búin að reikna út stærð allra Evrópulanda og fólksfjöldan í hverju landi, með það langtíma markmið að flytja fólk milli staða, þ.e. flytja fólk frá þéttbýlustu svæðunum til þeirra sem færri búa.  Við erum inn í þessum reikningskúnstum.  Og stöndum illa að vígi því það gæti farið svo ef allt fer á versta veg að þeim dytti í hug að flytja svona 300.000 manns hingað til að losa þéttbýlustu svæðin við kraðak.  Og ég hugsa nú bara hvaða þjóðflokkur yrði þar fyrir valinu?  Þjóð sem enginn vill hafa og bæði frakkar ítalir og fleiri eru að flytja nauðflutningum út fyrir sín landamæri?  Reikni nú hver fyrir sig.

Málið er að þessi hugsunarháttur kemur einmitt fram í þessu bréfi.  Í sambandi við fiskinn, hvenær hugsa þeir að 300.000 manns hafi ekkert að gera með allt þetta vatn, allan þennan jarðvarma og svo framvegis.  Það eru engin flón við völd í Evrópusambandinu. 

Það erum við sem erum skammsýn flón að halda að hér sé um einhverskonar góðu jólasveinana að ræða sem ætla að bjarga okkur.  Þetta eru blákaldar staðreyndir sem blasa við að mínu mati.  Þessu þurfum við að berjast á móti.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.1.2011 kl. 07:43

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Einhverra hluta vegna finn ég ekki fréttina sem er unninn upp úr þessu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.1.2011 kl. 07:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband