Leita í fréttum mbl.is

Orkusölumennirnir í Vinstri grænum

Steingrímur J. lét í Kastljósi kvöldsins eins og hann vissi lítið af og væri í þokkabót alfarið á móti sölunni á HS til Magma Energy.

Meint fáfræði Steingríms J. um söluna verður að teljast harla ólíkleg, sértaklega í ljósi þess að fyrir rétt rúmum mánuði síðan voru orkubraskarar frá Magma Energy og AGS á ferð með viðskiptaráðherra að  ræða endurskoðun efnahagsáætlunar AGS fyrir landið.

Það má að líkum ráða að salan á HS sé í beinu framhaldi af bústjórn AGS.

 


mbl.is Vill banna fjárfestingar erlendra aðila í orkufyrirtækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Þetta leikrit ríkisstjórnarinnar er að verða einhver skelfilegasta uppfærsla sem sett hefur verið á svið. Steingrímur Jóhann Sigfússon orðinn stóriðjukarl...eða kannski rétt að segja orðin það aftur, því ekki vafðist það fyrir honum í gamla daga.
Verkvitið sækir Steingrímur sjálfsagt frá systurflokki sínum í Þýskalandi PDS. PDS er gamli austu-þýski kommúnistaflokkurinn. Það er dæmalaust fyndið...nei ég meina sorglegt að Steingrímur valdi sér PDS í stað Dir Grüne, sem er flokkur umhverfisverndarsinna...og er þokkalega langt til vinstri. Nei Steingrímur vildi frekar kenna sig við gamla kommúnista.
Þarf þá nokkurn að undra vanhæfnina ?

Haraldur Baldursson, 18.5.2010 kl. 21:50

2 Smámynd: Jón Sveinsson

þessi stjórn með Jóhönnu og Steingrím í broddi fylkinga vilja þetta og hitt en gera annað ekkert sem þau taka sér til að gjöra er fyrir þjóðina ef þau sjá aurinn þá kasta þau krónunni þannig er þessi stjórn .

Jón Sveinsson, 18.5.2010 kl. 21:54

3 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Hjartanlega sammála Haraldi hér að ofan, þetta LEIKRIT hjá SteinFREÐ (frosinn heili) er bara ekki að gera sig.  Íbúar borgarinnar vilja fá "fagfólk - Jón Gnarr leikara" til að leika upp á sviðinu og við viljum TRÚÐANNA í burt, nógum skaða hefur þessi auma & stórhættulega ríkisstjórn valdið.  Verkstjórn Lady GaGa & Steinfreðs snýst um að uppfylla allar óskir AGS, með þeirra leyfi er opnað fyrir að erlendir hrægamar geti læst klóm sínum í okkar auðlindir og allt gerist þetta á vaktina hjá svokallaðri norræni velferðastjórn, ekki boðleg vinnubrögð.  Aldrei geta þau staðið vörðum um hagsmuni lands & þjóðar, þau spila ávalt í vitlausu liði.

Það síður í manni réttlátt reiði yfir þeim aumingjaskap sem einkennir þessa stórhættulegu ríkisstjórn.  "Ísland liggur vel við höggi peningamanna - hrægamanna. Sölumenn Íslands auglýsa það nú grimmt um veröldina og benda á auðlindanýtingu á brunaútsölu. Já, veislan er hafin hjá hákörlunum. Og stjórnvöld þjóðarinnar sofa að vanda."  Þú líkir AGS og auðhringum við hákarl, en ég tala um að hrægamarnir eru mætir á svæðið til að læsa klóm sínum í fyrirtæki & auðlindir á brunaútsölu, allt í boði þessar stórhættulegu ríkisstjórnar!

kv. Heilbrigð skynsemi (www.fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson, 18.5.2010 kl. 22:31

4 Smámynd: Haraldur Baldursson

Mikið var Vilhjálmur Vilhjálmsson, réttilega, gagnrýndur fyrir að lesa ekki samninga sem hann að líkindum var plataður til að undirrita (það er að vísu vinalega skýringin). En hvar eru fjölmiðlar núna ? Hvar er gagnrýnin á algera vanhæfni og fávisku Jóhönnu og Steingríms ? Hversu lengi ætla fjölmiðlar að láta þetta óátalið ? Hefur einhver fjölmiðlamaður metnað til að rísa undir kröfum um virkar gangrýni, eða ber okkur að álykta að þessari stefnu (því þetta er farið að missa marks sem tilviljun) sé stýrt af eigendum eða flokkstittum ?

Ég ákalla ykkur fjölmiðlamenn um að endurreisa fjórða valdið ! Hjálpið okkur landsmönnum ykkar með því að taka ykkar hlutverk alvarlega. VIð þurfum svo sannarlega á ykkur að halda núna.

Haraldur Baldursson, 18.5.2010 kl. 23:19

5 Smámynd: ThoR-E

auðlindunum "okkar" er útdeilt hægri vinstri .. skiptir engu máli hvaða flokkar eru við stjórn. Hvort sem það eru hægri flokkarnir með kvótan... eða þetta núna..

ThoR-E, 19.5.2010 kl. 10:18

6 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Sæll Sigurjón.

Það sem spilar stærstu rulluna er hlutskipti Framsóknar, Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingar en þau stýra öllu í umræddum sveitarfélögum sem og mynda hinn óhefðbundna meirihluta þegar til þarf. Þegar Reykjavíkurborg gekkst við 100 milljarða ábyrgð vegna Kárahnjúkavirkjunar þá reyndi á hinn "óhefðbundna" meirihluta sem saman stóð af klofnum R-lista og Sjálfstæðisflokki. Framkvæmdarvaldið fær ekki völd sín nema að hafa löggjafarvaldið á bak við sig. Hérna eru það flokkar sem mynduðu meirihluta á árunum 2002-2008 og keyrðu þjóðfélagið í þrot. Þú ættir að athuga þennan tengil um það hvernig nefnd alþingis um erlenda fjárfestingu á Íslandi höndlaði málið. Þar kemur hinn óhefðbundni meirihluti í ljós S-D og B.

Hvað Ráðherraábyrgð varðar þá fellur mál samanber þessum ömurlega sölugjörningi svetarfélaganna á suðvesturhorninu undir Viðskiptaráðherra.

Andrés Kristjánsson, 19.5.2010 kl. 14:57

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég þakka fyrir þessa upprifjun Andrés.  Vg með Steingrím J. í fararbroddi geta ekki varpað frá sér ábyrgð á málinu en hún er í beinu framhaldi af þægð flokksins við AGS.

Mér finnst afar sérkennilegt að á sama tíma og  Steingrímur ypptir öxlum og þykist ekkert geta gert þegar orkuauðlindir eru seldar þá tekur hann það ekki mál að fara yfir það hvot hægt sé að veiða meiri þorsk og vill greiða Icesave í topp.

Sigurjón Þórðarson, 19.5.2010 kl. 18:25

8 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Sæll Sigurjón

Væri samt ekki sanngjarnt að brjóta þessi þrjú mál upp og ræða þau sjálfstætt enda öll flókin og ekki skyld. Þorskkvótinn, Icesave og Magma.

Magma virðist vera hér í boði OR en ekki Steingríms Joð eða AGS. Magma hefur fjármagnað kaup sín með láni/skuldabréfum frá OR og fjármagnað restina með aflandskrónum frá Lúx. Þarna eru Íslendingar á ferð.

Við höfum áður rætt Þorskkvótann og vill ég meina að ástæða þess að stofninn sé veikur sé vegna ofveiði á smáfiski. Sú umræða var vegna sænskrar heimildarmyndar um norska laxeldið ásamt frægri svartsfuglveiði fyrir austan. Þú gafst lítið fyrir þá mynd. Ég taldi kenninguna sennilega því að við veiddum hátt í milljón tonn af loðnu á hverju tímabili á síðasta áratug en síðan "hvarf" hún. Afli þorsks er sjálfstætt umræðuefni.

Hvað Icesafe varðar og aðkomu AGS þá er þar klár tenging. Við Íslendingar stöndum frammi fyrir gígantísku endurfjármögnun á mörgum sviðum árið. Seðlabankinn og Orkufyritækin þurfa að endurfjármagna og það gerist ekki án fjármagns og traust. Þar stendur hnífurinn í kúnni. Því ekki viljum við að seðlabankinn gjaldfalli aftur eða orkufyritækin gjaldfalli. Það vita allir að okkur eru skorður settar.

Þetta er allt flókið með mörgum breytum og því ósanngjarnt að skeyta þessu öllu saman sem einhverju allsherjarsamsærisplotti  Steingríms og AGS. En sjálfsagt að ræða þessi mál sjálfstætt.

Bestu kveðjur

Andrés Kristjánsson, 20.5.2010 kl. 01:57

9 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Veiði á Íslandsmiðum hefur ekki verið jafn lítið af þorski í nálægt eitthundrað ár. Það þarf að fara aftur til ára fyrri heimstyrjaldarinnar til þess að finna hliðstæðu og aldrei hefur verið lögð jafn rík áhersl á smáfiskfriðun og friðun veiðisvæða. 

Það er auðvitað eitthvað stórt að ráðgjöfinni sem átti í upphafi að skila 500 þúsund tonna jafnstöðuafla.

Loðnan er ekki horfin það komu ágætar göngur í byrjun ársins en lítið var veitt eflaust til að fá meira seinna!

Annars er ágætt að rifja þessa mynd upp þar sem heimsendaspámenn létu til sína taka s.s. Pauly sem spáði hruni 2010 og svo voru aðrir s.s Boris Wom sem staðnir voru af vísvitandi fölsunum þar sem spáð var fyrir um hrun 2048.

Í vikunni kemur ný spá frá svipuðum geira um eyðingu allra fiska árið 2050 en engin skýrsla fylgdi né haldbær rökstuðningur.  Alltaf bíta fjölmiðlar á agnið og búa til stórfrétt um málið sem lítið sem ekkert er á bak við. 

http://sigurjonth.blog.is/blog/sigurjonth/entry/835382/

Sigurjón Þórðarson, 20.5.2010 kl. 09:38

10 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Ég er reyndar sammála því að heimsendaspár (sensationalismi) hjálpi engu og hef sáralitla trú á að stofnar hrynji þó miklar sveiflur geti mælst.

En hversu mikinn þorskafla telur þú að við getum veitt og afhverju er ekki veitt meira?  

Bestu kveðjur.

Andrés Kristjánsson, 20.5.2010 kl. 10:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband