Leita í fréttum mbl.is

Hverju hefur ríkisstjórnin áorkað?

Ég velti því fyrir mér í þegar ég fór í laugina hér á Króknum hverju þessi ríkisstjórn hefði komið í verk.

Ríkisstjórnin hefur:

1) Sótt um aðild að Evrópusambandinu.

2) Samþykkt tvo Icesavesamninga.

3) Einkavætt banka til ótilgreindra aðila.

4) Sett af stað sérkennilega 20/20 áætlun.

5) Þegið tvö málverk.

6) Skorið fyrst niður hjá öldruðum og öryrkjum.

7) Stofnað Bankasýslu ríkisins.

8) Fjölgað aðstoðarmönnum.

9) Hert gjaldeyrishöft.

10) Katrín Jakobs fór í bíó til Kanada.

11) Haldið áfram með byggingu Tónlistarhúss.

Hver segir svo að Jóhanna okkar Sigurðardóttir hafi ekki lyft grettistaki þótt hún hafi tekið sér ágæt frí inn á milli?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Rekið einn ráðherra.

Sveinn Elías Hansson, 24.2.2010 kl. 23:36

2 identicon

Gefið þjóðin "gjaldborg", þeir hafa staðið VÖRÐ um hagsmuni Breta & Hollendinga, ítrekað, þeir hafa staðið VÖRÐ um hagsmuni bankanna gegn ÞJÓÐINNI, þeir hafa náð að sigla þjóðarskútunni í strand í annað sinn, ótrúlegt afrek hjá Samfylkingunni og ef við gefum þeim aðeins meiri tíma þá munu þeir ná að koma okkar samfélagi í "greiðsluþrot" - nú er mál að linni...!

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 24.2.2010 kl. 23:43

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Mikið rétt og hækkað bensín og brennivín.

Sigurjón Þórðarson, 24.2.2010 kl. 23:58

4 identicon

Þessi ríkisstjórn hefur ekki gert neitt sem við getum talið henni til hróss.  Því miður.  Ringluð, óörugg, ja eiginlega stundum kjánaleg.  Eins og upptalning  þín hér á undan sýnir.

P.s.  Verðhækkun á bensíni /dísel er hreinlega arfavitlaus. Sömuleiðis hækkun áfengisverðs.

Auður Matthíasdóttir (IP-tala skráð) 25.2.2010 kl. 00:19

5 identicon

 Hvað er til ráða ?

Ásgeir Gunnarsson (IP-tala skráð) 25.2.2010 kl. 00:59

6 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Ekki má gleima gjörðum Svandísar Svarsd. Þær eru athyglisverðar.

Gunnar Heiðarsson, 25.2.2010 kl. 02:07

7 identicon

Ólafur Ragnar hafði rétt fyrir sér þegar hann sakaði íslenska stjórnmálamenn (vissa) um að hafa "skítlegt eðli" og hann hafði eflaust einnig rétt fyrir sér þegar hann sagði: "..yOu ain´t seen nOthing yet..!"  Eða með orðum Dorritar: "Íslenskir útrásar skúrkar stórustu villimenn í Evrópu..!"

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 25.2.2010 kl. 03:20

8 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Það er auðvelt að gagnrýna þegar stjórninni er haldið í gæsluvarðhaldi af hrunamönnum(stjórnarandstaða). Tekið við bönkum sem ekki var hægt að halda. En bankarnir eru nú á höndum kröfuhafa. 150 milljarða fjárlagahalla, 600 milljarða króna skuldir orkufyritækja(eitt nú þegar fallið), sjávarútveg sem skuldar 550 milljarða hið minsta. Seðlabanka sem er gjaldþrota. Icesaveflækjum sem hafa fryst lánshæfi okkar. Svo ekki sé talað um skuldastöðu heimilana.

Einnig er vert að athuga lánshæfi þjóðarinnar þegar menn hafa kaffært þjóðinni svona svakalega. Það er aum rök Suðurnesjamanna að halda að Svandís hafi stoppað Helguvíkur dæmið. Þegar þeirra orkufyritæki þeirra féll HS orka. En ekki hefur tekist að fjármagna orkuframkvæmdir vegna Helguvíkur það vita allir. Eina lánið sem fengist eftir hrun eru 30 milljarðar OR, en það var Steingrímur J sem hafði milligöngu um það. Til að fjármagna orkuþ0rf Helguvíkurálvers þarf tæpa 400 milljarða. Century sem er veikt fyritæki voru fyrst nú að redda sínum lánum. " Við komum hvort sem ykkur líkar betur eða verr" er haft eftir forstjóranum. Hann veit hver er að fara að græða á þessum framkvæmdum og hver ekki.

Ég held að menn geri sér ekki grein fyrir því hversu nálægt gjaldþroti við erum og því ótækt slá um sig með dylgjum.

Betra er að stilla sér ekki upp við hlið hrunamanna Sigurjón, halda frekar áfram að lemja á handónýtu kvótakerfi hinna skuldugu.  Sem og að koma með lausnir.

Andrés Kristjánsson, 25.2.2010 kl. 03:43

9 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

En þetta kaus þjóðin sjálf yfir sig sem er mesta áhyggjuefnið

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 25.2.2010 kl. 08:16

10 Smámynd: Ragnar Eiríksson













Katrín bíókona sleppti því að hirða þau hundruð málverka sem voru fyrir mistök einkavædd hérna um árið!    Það er henni til vansa að vera  í rólegu ráðuneyti og láta svona tækifæri fram hjá sér fara!

 Kv.

Ragnar

Ragnar Eiríksson, 25.2.2010 kl. 08:41

11 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það eru engir hrunamenn sem hindra stjórnina heldur er það kraft og stefunleysið - Skýrasta dæmið er aumingjagangurinn í krinum sjávarútvegsmálin og taka á skuldastöðu heimilanna auk þess að láta gjaldeyrislánin reka á reiðanum.

Sigurjón Þórðarson, 25.2.2010 kl. 09:16

12 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Þetta er góð upptalning á afrekum stjórnarinnar Sigurjón, eflaust má ýmsu viðbæta en allt á sömu lund.

Ragnar Gunnlaugsson, 25.2.2010 kl. 10:54

13 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Ég held að þið skiljið hreinlega ekki vandamálið. Á Grikklandi er allt stopp vegna 12.7% niðurskurðs á fjárlögum. Eftir lélegustu efnahagsstýringu nokkurar þjóðar nokkurn tímann þá þarf rísisstjórnin að skera niður um 33% (heimsmet sem hrunamenn skildu eftir sig). Ríkisstjórninni hefur nú þegar tekist að finna 12.5% en dugar það skammt. Gatið er engu að síður 100 milljarðar sem er þrefaldur brúttó vaxtarkostnaður vegna Icesave fyrir næsta ár. OUCH!!!!

Þegar menn segja að við kusum þetta yfir okkur þá þurfa menn að átta sig á því hver hinn kosturinn er. Hann er skipaður mönnum sem gætu ekki rekið Bæjarins bestu þó það væri á ríkisstyrkjum. Þessi hinn kostur gengur undir nafninu hrunamenn.

Vandamálið varðandi kvótann er ekki síst ykkur í Frjálslyndum að kenna. Ykkur tókst ekki að koma ykkur á þing sem hefði gert alla upptöku á kvóta auðveldari. Kannski treystu menn sér ekki að kjósa ykkur vegna daðurs við Sjálfstæðisflokkinn. En menn á borð við Gunnar Örlygs og hinn “meistarinn” Jón Magnússon fluttu sig bara beint yfir í gin kvótaflokksins. Þið voruð ekki trúverðugir enda ekki annað lesið úr þessum skrifum en að þið viljið aftur kvótagreifana í ríkisstjórn.

Andrés Kristjánsson, 25.2.2010 kl. 15:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband