Leita í fréttum mbl.is

Jóhanna er ekki hæf - maður hrekkur í kút

Kastljós kvöldsins hófst á því að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fór mikinn í að lýsa gríðarlegum árangri ríkisstjórnarinnar á eins árs afmælinu m.a. við að endurreisa banka, tryggja uppbyggingu atvinnulífsins, vegamála og koma á rannsóknum á efnahagsglæpunum gegn þjóðinni. 

Þegar spyrill leiddi talið að Icesave og spillingar feluleiknum í bönkunum, þá blasti skyndilega allt annar veruleiki við þjóðinni s.s. að hækkað skuldatryggingaálag sem allt var að drepa og mikil hneykslun á leyndinni í bönkunum.  Það var helst að skilja á forsætisráðherra að hún réði varla við eitt né neitt í bönkunum vegna þess að það væri komin ný Bankasýsla.  Hún hljóp hins vegar yfir þá staðreynd stjórnvöld skipuðu kúlulánaþegi til að leiða starf Bankasýslunnar og viðskiptaráðherra hefði neitað að upplýsa þingið um skuldir útvegsins.

Æðsti ráðamaður landsins gaf þjóðina þá framtíðarsýn að það væri heldur ekki að standa í vegi fyrir því að glæpmennirnir sem settu landið á hausinn og beitt ósvífnum blekkingum , fengju nú fyrirtækin sín til baka með afskrifuðum skuldir, en lýðurinn fengi að mestu að vera eitthvað áfram í húsunum sínum og greiða margfalt af lánum og sömuleiðis hækkaða skatta.

Maður hrökk í kút við að horfa á þáttinn.


mbl.is Lítið kom út úr fundinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sveinsson

Já þetta viðtal sínir hvað falsið er mikið í þessari ríkisstjórn

Jón Sveinsson, 2.2.2010 kl. 20:42

2 Smámynd: Halla Rut

En samt heldur lýðurinn áfram að styðja stjórnina. Hvernig stendur nú á því?

Halla Rut , 2.2.2010 kl. 20:42

3 identicon

Mér fannst nú þetta "blessaða" viðtal Þóru við Jóhönnu vera eintal.... Fannst Jóhanna koma vel út, halda "kúlinu"... en Þóra stressuð og dónaleg..

sigrún B. Sæmundsdóttir (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 20:48

4 Smámynd: Einhver Ágúst

Hver er valmöguleikinn?

Einhver Ágúst, 2.2.2010 kl. 20:53

5 identicon

Mér fannst Þóra standa sig vel - hún sat ekki bara og gleypti við staðleysum heldur spurði nánar út í það sem ábótavant er.

Eva Sól (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 21:05

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Halla, mér finnst líklegt að margur telji að það sé ekkert skárra í boði inn á þingi Hreyfingin hefur lent tímabundið í hremmingum,  Bjarni Ben og þingflokkur Sjálfstæisfl. raun allur eiga alveg nóg með sjálfan sig.   Það fór svo sem margan grunaði að þingflokkur Framsóknar með formanninn í broddi fylkingar hefur síður en svo haft nokkuð við að athuga að einkavinurinn Ólafur Ólafsson fengi Samskip á ný með Tortóla fé.

Ég sá það reyndar um daginn í Reykjavík, við Miklubrautina ekki langt frá Lönguhlíðinni, að það hafði einhver haft fyrir því að  setja mynd af Ólafi Ragnari Grímssyni út í glugga hjá sér og lýsa þar að auki ljósmyndina upp.   Það getur vel verið að einhverjir séu farnir að líta til forsetans þó ótrúlegt sé til að losna út úr helgreipum og úrræðaleysi Fjórflokksins.

Sigurjón Þórðarson, 2.2.2010 kl. 21:34

7 identicon

Ég spyr eins og Ágúst: Hver er valmöguleikinn? B og D kemur ekki til greina. Allt er betra en B og D. ALLT!

Ágúst II (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 22:50

8 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Eru Arion banki og Íslandsbanki ekki að mestu leiti í eigu kröfuhafa.

Hefur ríkisstjórnin eitthvað með þá að gera?

Sveinn Elías Hansson, 2.2.2010 kl. 23:01

9 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Hafði ríkisstjórnin nokkuð með það að gera hvar þeir lentu - Komm on.

Sigurjón Þórðarson, 2.2.2010 kl. 23:17

10 Smámynd: Jón Sveinsson

Ríkisstjórnin tók bankana og gat gert það sem þurfti en getuleysi þeirra hefur komið í ljós, það á að rétta útrásarvíkingunum alt aftur það er stefna þessara getulausu stjórnar þau tala í hringi og seiga Bretar og hollendingar vilja bara að við borgum og við verðum að gera eins og þeir sega, Að hugsa sér að hafa slíka stjórn á Íslandi þau eru þjóðinni til háborinnar skammar.

Jón Sveinsson, 2.2.2010 kl. 23:35

11 Smámynd: Jóhann Elíasson

Svei mér þá það er allt betra en þessi "ríkisstjórn fólksins" og þá meina ég ALLT.

Jóhann Elíasson, 2.2.2010 kl. 23:53

12 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Jóhann það var meining Þórarins Hjartarsonar stálsmiðs á Akureyri sem benti á að Vg hefði snúist  upp í andhverfu sína.

Sigurjón Þórðarson, 3.2.2010 kl. 00:00

13 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Gat ríkisstjórnin einhverju ráðið með það hvar þessir bankar lentu?

Ég er ekki að lofa þessa ríkisstjórn. Hún er handónýt.

Þessi ríkisstjórn hefur svikið litla manninn.

Ég var sjálfur að komast í mikla klemmu þegar ég fékk tilboð í mína íbúð, samþykkti strax bara til að losna á meðan ég var ekki kominn í mínus. Hefði ekki samþykkt tilboðið ef ég hefði haft einhverja trú á þessarri stjórn.

En það er sama hvaða stjórn er. Þetta lið sem situr á þingi er algerlega vanhæft til nokkurra vaerka, vegna tengsla við hrunið.

Þá meina ég allir sem sitja á þingi.

Sveinn Elías Hansson, 3.2.2010 kl. 00:06

14 Smámynd: Dexter Morgan

Ég hjó eftir tvennu hjá henni sem hún var að telja þessari svokölluðu ríkisstjórn til tekna. Þeir eru að "leyfa" almenningi að taka út lífeyrissparnað sinn, s.s. Þeir eru að leyfa okkur að taka út af bankabókinni sem átti að geymast til efri ára. Og hitt var að hún var að skreyta aðgerðarleysið í atvinnumálum með því að minnast á 500 störf sem skapast hafa í nýsköpunar og sprotafyrirtækjum. Ég get bara fullyrt, að það er ekki að þeirra frumkvæði. Þetta fólk er bara að berjast við að koma einhverju á fót til að geta haft atvinnu af, finna sér eitthvað annað í atvinnuleysinu hérna á landi.

Þetta tvennt hefur EKKERT með ríkisstjórnina sem Jóhanna talar fyrir, fólkið hefur skaðað þetta allt sjálft uppúr neyð til að hafa eitthvað að gera. Og að "leyfa" okkur að eyða ellilífeyrinum núna er bara skömm.

Dexter Morgan, 3.2.2010 kl. 00:56

15 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Á miðöldum tóku skottulæknar blóð úr fólki við "innanmeini"  Því meira blóð sem tekið var því kröftugri var lækningin.

Kannski að skattahækkanir á fyrirtæki leysi vanda þeirra?

Sigurður Þórðarson, 3.2.2010 kl. 05:59

16 Smámynd: Hrannar Baldursson

Mér fannst þær báðar standa sig vel í viðtalinu, en held að Jóhanna sé komin á villigötur og þurfi á utanaðkomandi hjálp að halda. Það eitt að hún vilji samþykkja ICESAVE # 2 segir meira en nokkuð annað.

"Actions speak louder than words" segir kaninn. Það á við um þetta ICESAVE fjör.

Hrannar Baldursson, 3.2.2010 kl. 07:54

17 Smámynd: Einhver Ágúst

En hvar er hin þögla rödd meirihlutans?

Einhver Ágúst, 3.2.2010 kl. 11:51

18 identicon

Ekki á mbl.is, svo mikið er víst!

Tryggvi (IP-tala skráð) 3.2.2010 kl. 14:07

19 identicon

Jóhanna sat í forundran og þóttist ekkert skilja um bankastjórnun landsins og skilanefndir í leikritinu sem hún setti upp fyrir þjóðina í Kastljósi!

Hún hugði ekki að sér, hún er svo flækt í eigin blekkingarvef að með því talað hún af sér og staðfesti rækilega með eigin orðum það sem flestir vita að hún og Steingrímur eru með öllu ófær um að stjórna landinu og hafa engin úrræði eða lausnir fyrir þjóðina, en á sama tíma ekkert nema hrokinn og merkilegheitin og þykjast vita allt best um LAUSN á Icesave. Hvað veldur að þau eru svona miklir sérfræðingar um Icesave- en engin önnur mál?

Steingrímur og Jóhanna fussa yfir og svívirða alla sérfræðinga nema ráðgjafa ríkistjórnarinnar sem tala með Icesave... og hverjir eru þeir???

Fjórir af ráðgjöfum ríkistjórnarinnar eru FYRRUM YFIRMENN Icesave bankans!!! allir bankarnir fléttast saman í eignarhaldi og lánum.

Miðað við ráðningar fyrrum lykilmanna úr þeirra röðum, birtist nýr flötur á sjúkri þvermóðsku ríkisstjórnarinnar að hafa að engu lögfræðilegar staðreyndir og stuðning málsmetandi manna en keyra Icesave málið í gegn og láta þjóðina borga.

Staðreyndin sem blasir við er að í ríkisstjórn Íslands situr: ICESAVEBANKI OG CO, MEÐ FYRRVERANDI ALLT OG NÚVERANDI ALLT og STJÓRNAR ÍSLANDI !!!

Ef Icesave færi fyrir dómstóla þá verða líkast til öll gögn þar með opinber og ráðgjafar/ríkistjórnin munu gera allt til að koma í veg fyrir það. Við eigum því von á skrautlegum uppákomum á næstunni þegar Jóhanna kemur til baka frá Brussel. Eins gott að við fylgjumst vel með og látum ekki hafa af okkur réttinn að kjósa 6.mars í boði fyrir einhvern svikablekkingavef sem verður spunninn.

Anna Björg Hjartardóttir (IP-tala skráð) 3.2.2010 kl. 14:41

20 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Ekki má gleyma afreki ríkisstjórnarinnar við að koma á "strandveiðum"þar sem forstjórar og aðrir gátu farið að veiða og selja fisk sem þeir veiddu á sportbátinn sinn sem þeir höfðu fengið því sem næst gefins vegna þess að búið var að selja af honum kvótann.Eða þá að kvótasalinn fór að veiða sjálfur á kvótalausann bátinn.Og hagræðinginn:550 bátar með 750 mönnum veiddu á tveim mánuðum 4000 þúsund tonn af verðlitlum fiski.Afli sem 15 bátar innan smábátakerfisins með beitningarvélar um borð hefðu getað veitt á sama tíma með samtals 60 mönnum.Skrípaleikur.Höfundar skrípaleiksins:Ólína Þorvarðardóttir, Steigrímur J.Strandveiðar eru hobbý sem fæst borgað fyrir og eru góðar sem slíkar.Þær ná því tæpast að geta talist atvinnubótavinna.

Sigurgeir Jónsson, 3.2.2010 kl. 18:16

21 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Sigurgeir þetta kvótakerfi skilar einungis þriðjungnum af þeim þorskafla sem áður veiddist á Íslandsmiðum og hefur lagt landsbyggðina meira og minna í rúst - Það er fáránlegt að verja þetta vonlausa kerfi. 

Það eru ekki einu sinni gildandi kjarasamninga í hjá kvótabátunum í krókabátunum s.s. hjá Ásbirni Óttarssyni - fyrirtækjum sem skulda sum hver mörg þúsund milljónir króna.

Sigurjón Þórðarson, 3.2.2010 kl. 18:33

22 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

þetta er ekki rétt.Samkvæmt vinnulögjöfinni má hver og einn launþegi gera kjarasamning við sinn yfirmann.Það gildir líka um sjómenn sem starfa á smábátum.Ásbjörn Óttarsson eða Nesver er með kjarasamning við sína starfsmenn.Ríkisstjórninn ætlar að rústa kjörum sjómanna með því að setja veiðiréttinn á uppboð hjá Ríkinu í R.vík.Landsbyggðin lifi.Niður með Ólínu Þorvarðardóttur fyrrverandi borgarfulltrúa Nýs Vettvangs og afætur hennar.

Sigurgeir Jónsson, 3.2.2010 kl. 20:07

23 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Svo skulum við ekki gleyma því að allir bátar innan smábátaflotans sem stunda veiðar og fá að selja aflan eru kvótabátar.Það er ákveðinn kvóti sem hver bátur má veiða á dag og heildarkvótapotturinn er ákveðinn fyrirfram.Stór hluti strandveiðiflotans var áður sportbátar, eins og til að mynda bátur Arthúrs Bogasonar formanns Landssambands smábátaeigenda.Okkur var mútað.Arthúr sem er með 900 þús. á mánuði fær nú að stunda strandveiðar með þeim launum sem hann hefur fyrir.Hann er þátttakandi í skrípaleiknum.Stór þáttakandi.

Sigurgeir Jónsson, 3.2.2010 kl. 20:16

24 identicon

Allt er betra en B og D. ALLT!

ÍSLAND ER BÚLGARÍA NORDURSINS VEGNA SPILLINGAR B OG D.

ALDREI AFTUR B OG D. ALDREI!

Ágúst II (IP-tala skráð) 3.2.2010 kl. 20:33

25 Smámynd: Jóhann Kristjánsson

Það á að sjálfsögðu að þjóðnýta kvótann í hvelli. Og það má vel gera það á einni nóttu. Gleymum því ekki að það var nú skipt yfir í hægri umferð á örfáum sekúndum hérna um árið. Það gat enginn skælt yfir því, enda var það bara eitthvað sem menn urðu að sætta sig við. Það sama á við um kvótann. Þeir eru alveg ótrúlegir vælukjóar blessaðir kvótakóngarnir.

Jóhann Kristjánsson, 3.2.2010 kl. 21:43

26 identicon

Ég tek undir thetta Jóhann Kristjánsson.  Enda er fiskurinn í landhelgi Íslands eign thjódarinnar.  Ekki bara vaelukjóar..heldur sidlblindar frekjudollur.

Ágúst II (IP-tala skráð) 3.2.2010 kl. 21:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband